Sjæse...
Það er rosalegt... Ó mæ god...
Jæja, þá verður allt friðað til andskotans.
|
Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 1.2.2009 | 16:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Ég las færslu sem var ýtti fast við mér og mér finnst svo mikil hvatning í þessum orðum...
Við erum of mörg sem mætum ekki, gerum ekkert, sitjum heima og berum harm okkar í hálfgerðu hljóði. Ég segi "við" því að ég er ein af þeim.
Tek mér því það bessaleyfi að koma með link á færsluna sem ég las og vona að sem flestir lesi og geri svo eitthvað í málunum. Ég hef amk hugsað mér að gera það.
http://larahanna.blog.is/blog/larahanna/entry/767334/
Bloggar | 10.1.2009 | 14:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jæja, búin að eiga!!
Allar fréttir eru á www.septembergull.barnaland.is
Bloggar | 15.8.2008 | 10:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ég er svolítið að spá í hvort það er ekki rosalega erfitt að vera feitur?? Ég er ekkert FEIT þannig séð, bara ólétt og það sem því fylgir, vigtin stígur uppávið í hverri viku en það virðist vera náttúrulögmál þegar maður er óléttur og alltaf svangur. En mér finnst alveg ofsalega erfitt að hreyfa mig! Ég er ekki með grindargliðnun eða bjúg, er bara þung á mér og með álíka gott jafnvægisskyn og drukkin belja í hálku.
Ætli það sé svona erfitt að standa upp ef maður er "bara" feitur? Ætli maður sé alltaf með brjóstsviða ef maður er "bara" feitur? Ætli maður sé alveg gjörsamlega að kafna úr hita? Finnst manni að maginn á manni nái upp í kok? Ætli maður verði svona ægilega þreyttur og móður á því að hreyfa sig smávegis? Eða er þetta bara eitthvað enn eitt sem er svona dásamlegt við að smíða barn? Spurning um að spyrja einhvern sem hefur prufað bæði... Hvernig ætli þannig samtal myndi samt byrja? "Hérna, þegar þú varst feit - var það svipað og að vera ólétt?" eða "fannst þér erfitt að vera feit? Varstu voða þung á þér Var þér mjög heitt?" Ætli það sé hægt að brydda upp á þessu án þess að vera örlítið móðgandi?
Kannski þarf ég ekkert að spyrja neinn. Kannski verð ég bara feit sjálf þegar allt er afstaðið! Miðað við svengd og matarlyst yrði ég ekki hissa...
Skil ekki afhverju ég er svona svöng alltaf, fæ alveg hungurverki og læti oft á dag! Já, maður getur lengi á sig blómum bætt. Spurning um hvort það sé átt við það þegar sagt er að maður sé "blómlegur". Ég þyki víst ægilega blómleg þessa dagana. "Hrós" sem ég hef aldrei heyrt fyrr en nú. Og nú fæ ég að heyra það oft. Veit bara ekki hvort það er jákvætt að vera blómlegur! Gísli segir að það sé að ég sé að blómstra. Blómstra? As in stækka þá eða? Springa út? Maður spyr sig.....
Annars er ég hress. Voðalega oft með þessa samdrætti reyndar, alltaf verið að stoppa mann á spítalanum! Er svo viss um að kútur kemur ekkert strax, ég geng örugglega framyfir á endanum! Finn samt aðeins fyrir honum, hann er ótrúlega duglegur að hreyfa sig og mótmæla ef ég leggst á hliðina þá sparkar hann í þá hlið. Hann er líka svolítið spenntur fyrir því að troða sér undir rifbeinin hægra megin. Það er ekki alveg þæginlegasta tilfinning í heimi! En hann er samt æði - þó hann sé ekki einu sinni fæddur 
Gísli er hress. Hann er að mála gluggana á húsinu núna. Húsið er á sölu og það er örugglega ekki verra að hafa gluggana fína og nýmálaða að utan :) Reyndar er voða oft verið að skoða það og við höfum fengið alls konar tilboð og fyrirspurnir. Bara ekkert sem hentar okkur, enda liggur okkur ekkert á að selja þannig séð - fer voða vel um okkur hér
Jæja, kallinn minn er kominn inn og ég er að spá í að horfa með honum á eina bíómynd eða svo.
Sjáumst!
Bloggar | 27.7.2008 | 20:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ekki skrýtið að ólétta hormónakonan hafi verið að kafna úr hita í dag... 
Mælirinn í eldhúsinu sýndi 22° og þar var skuggi, þar var "kalt"!
Hinum megin við húsið var HEITT, sól og engin gola. Ég rölti út með bók og vatnsglas og ætlaði að sóla mig á pallinum en hrökklaðist inn eftir örskammastund í svitabaði. Prufaði svo að leggjast á trampólínið úti á túni í von um að golan gerði eitthvað fyrir mig en allt kom fyrir ekki. Var alveg að sofna í hitanum og á endanum staulaðist ég aftur inn, hálf meðvitundarlaus af hitakófi.
Já, heitasti dagurinn á árinu og kúla full af barni er ekki vinsæll kokteill á þessum bæ!
P.S. Mér er ennþá heitt og það gerist ekkert þó ég opni gluggann! 
|
Heitasti dagur ársins |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 25.7.2008 | 20:25 (breytt kl. 20:25) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Efast um að nokkur lesi þetta en læt samt slag standa og skrifa nokkrar línur. Ef engar athugasemdir berast mun ég hins vegar endurskoða það að halda úti svona bloggsíðu með jafn mikilli vinnu og ég geri... og hananú!
Fréttir af okkur fjölskyldunni á Skaganum eru ágætar. Gísli er enn að vinna hérna uppfrá, frúnni til mikillar gleði því hann kemur jú heim í hádeginu á hverjum degi. Það er dásamleg tilbreyting frá hinum klukkustundum dagsins fyrir mig sem sit hér ein annars og geri mest lítið annað en að rápa um á netinu eða horfa á sjónvarp.
Aron er í sumarfríi og nýtur þess í botn. Hann hoppar ofsalega mikið á trampólíninu úti í garði og ég er ekki viss um að öll líffærin hans séu á sama stað og þau voru í fyrra eftir öll þessi hopp. Annars eru tölvurnar á heimilinu notaðar til hins ýtrasta líka og ég á ófá "samtöl" við son minn sem ég sjálf á í vandræðum með að taka þátt í og eiginlega skil ekki. Flest þeirra eru um einhvern eða eitthvað sem kallast Ratchet n' Clank (held ég) og svo eru einhver um gulkisturnar hans Indiana Jones. Ég segi oftast lítið annað en "já, ok" eða "já, er það?" og svo stundum "frábært" í þessum samtölum. Aron virðist ekki gera sér grein fyrir því að ég er ekki virkur þátttakandi í umræðunum um gullkisturnar og er mjög sáttur þegar hann er búinn að segja mér fréttir.
Ég sjálf er orðin að hormónaskrímsli sem flellir tár þegar það hlustar á tónlist, horfir á sjónvarp og svo framvegis.... Ég hef hingað til horft á bíómyndir með ófrískum konum og fundist þær rugl. Ófrísku konurnar í bíómyndunum borða ofsalega mikið og eru sívælandi og brjálaðar. Ég borðaði reyndar helling þegar ég gekk með frumburðinn en tárin runnu ekki niður kinnarnar á mér neitt frekar en ég væri ekki undir áhrifum hormóna.
Nú er önnur saga! Ég finn hvernig hormónarnir koma yfir mig í einhvern veginn bylgjum og skapið breytist með. Suma daga er ég reið, aðra leið, stundum bæði, stundum hvorugt, oft glöð og allt þar á milli. Og tár fylgja þessu flestu
Stórkostlega fáránleg tilfinning að ráða ekkert við kökkinn í hálsinum og tárin sem brjótast út um augun og renna niður kinnarnar í stríðum straumum. Á afmælisdaginn minn var sunginn fyrir mig afmælissöngurinn - það var of mikið fyrir ólétta skrímslið. Fréttatíminn er ekki í boði fyrir mig og ég græt yfir öllum sjónvarpsþáttum held ég. Bíómyndum líka. Annar fylgikvilli hormónanna er að ég oftúlka og misskil mjög margt sem maðurinn minn segir og gerir. Því fylgja líka tár. Svo er ég endalaust og alltaf svöng! Ó svo svöng og mér finnst svo gott að borða... Sérstaklega furðulegan mat eins og mjög súr epli, vatnsmelónur, sælgæti, candy floss og sykurinn utan af brúnuðum kartöflum ef ég kemst í hann. Mikið hlakka ég til að verða aftur ég!!!
Annars er ágætt að frétta af litla kút í bumbunni. Hann sparkar hressilega oft og mörgum sinnum á dag, alveg sérstaklega mikið ef pabbi hans er nálægt ;) Tilhlökkunin að sjá hann og fá að knúsa hann alveg í klessu er orðin mikil og við bíðum öll spennt. Við erum alveg handviss um að hann sé eitt stórkostlegasta barn veraldar, undurfagur og dásamlegur í alla staði. Viljum þó ekki fá hann út alveg strax og þess vegna held ég áfram að taka lyfin mín samviskusamlega og þarf að vera dugleg að slaka á og liggja út af. Blóðþrýstingurinn fer eitthvað hækkandi hjá mér líka sem er enn meiri ástæða til að vera róleg og liggja kyrr heima. Bara 60 og eitthvað dagar eftir....
Bloggar | 21.7.2008 | 14:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Annars lítið annað en meðgöngutengt! Er komin á sjúkrahúsið út af samdráttum (á tæpar 12 vikur eftir af meðgöngunni þannig að það er EKKI tímabært!)
Þið getið lesið betur um það á bumbusíðunni: www.septembergull.barnaland.is ;)
Bestu kveðjur :)
Bloggar | 7.7.2008 | 20:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
...til að fara í útilegur! Við fjölskyldan erum byrjuð að fara um helgar burt úr bænum og út í sveit - helst í nágrenni við vatn þar sem hægt er að renna fyrir fisk :) Það stendur einmitt til að fara í eina slíka í dag og fram á sunnudag og er frúin á heimilinu að fara að baka eitthvað gott til að taka með í hjólhýsið. Ég get reyndar ekki alveg veitt eins og ég er vön, kemst varla í vöðlurnar og er hálf kjánaleg þrammandi í þeim út í vatn með kúluna út í loftið
Svo finnst mér hálf vont að kasta út, meiði mig aðeins í bumbunni þegar það tognar svona á henni.
Annars fínt að frétta, okkur heilsast öllum vel hér á bæ. Aron er að verða búinn í skólanum og hlakkar eðlilega mikið til að komast í sumarfrí. Gísli hefur verið að vinna hér á Skaganum og verður það áfram, það er rosalega fínt - hann kemur heim í hádeginu og er ekki heila eilífð að komast heim úr vinnunni! Ég hef ósköp lítið að gera, það gengur eitthvað erfiðlega að finna sér vinnu í þessu ástandi - skil það svo sem alveg, myndi örugglega ekki ráða ólétta manneskju í vinnu sjálf ef ég gæti komist hjá því. Heilsan er samt sem áður ágæt alveg, ógleðin er FARIN (jess jess jess!!) en grindin er aðeins að byrja að stríða mér. Það er samt ekkert slæmt og ég get alveg gengið og allt það, þreytist bara í grindinni ef ég er að vesenast mikið.
Við erum aðeins byrjuð að undirbúa komu litla örverpisins, það er búið að kaupa þennan fína vagn handa honum og stórt amerískt rimlarúm. Ég er voða hrifin af amerískum rúmum handa börnum, þau eru með svo góðum dýnum og eru líka svo rúmgóð. Reyndar fann ég rúm og skiptiborð og ýmislegt fleira sem mig langar í inní Stubbasmiðjunni í Holtagörðum en þær vörur eru hreinlega ekki í boði... Skiptiborðin kosta yfir 50 þúsund og rúmin líka!!
Hrikalegt verð á sumu þarna inni en mikið er flott dót til sölu þarna! Ég held að ég ætli aldrei aftur inn í þessa búð, nenni ekki að svekkja mig á því hvað mig langar mikið í allt þarna hehe. Svo hef ég verið með einhvern bílstóla valkvíða eftir að hafa skoðað fullt af þannig en hef ákveðið að hvaða stóll sem er, svo framarlega sem það er "base" með honum er fínn. Hef verið að skoða á barnalandi hvort einhver er að selja þannig notaðan en hef ekkert séð neinn ennþá - þeir hafa allir verið seldir. En við höfum ágætis tíma til að finna þetta, verð bara með opin augun fyrir þessu í sumar. Ef þið þekkið einhvern sem vill losna við eða lána bílstól, skiptiborð eða ömmustól, þá megið þið hugsa til okkar 
Litli prinsinn er farinn að láta finna aðeins fyrir sér, hann er duglegur að sparka í mömmuna sína en hættir oftast um leið og einhver ætlar að fá að finna. Reyndar hefur pabbi hans, Aron og Hanna fengið að finna smá spark en mestu lætin í honum eru þegar ég er ein heima. Þá getur maður stundum séð spörkin utan á! Hann er hrifinn af því að sparka beint niður í þvagblöðruna mína og á það til að ýta einhvern veginn ofan á hana líka - sem er hræðilega óþæginlegt! (sérstaklega ef maður þarf að pissa!!) Aron gerði þetta aldrei svo ég muni, ætli hann hafi ekki snúið einhvern veginn öðruvísi.
Jæja, ætla að fara að undirbúa okkur fjölskylduna fyrir næsta ferðalag (sem hefst á eftir) 
Chiao
Bloggar | 30.5.2008 | 09:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fínar fréttir héðan af Skaganum :)
Ég fór í sónar í gær og litla "prinsessan" mín er ekkert mikil prinsessa! Amk er maður með fínan sprella og var duglegur að veifa honum í allar áttir í sónarnum. Sem sagt annar gaur í safnið okkar
Það er að sjálfsögðu alveg frábært og við erum voðalega ánægð með fréttirnar þó að okkur hefði ekkert þótt leiðinlegt að fá eina bleika stelpu (og þá aðallega mér held ég!). Annars eru frekari fréttir inná síðunni sem ég bjó til fyrir minnsta prinsinn: www.septembergull.barnaland.is (og ekki gleyma að skrifa í gestabókina!!)
Allt annað gengur sinn vanagang, Aron gaurast með vinum sínum meira og minna allan daginn á meðan heilinn í mér rýrnar með hverjum deginum. Man ekkert orðið og ég er að verða rugluð líka. Keypti mér til dæmis lottómiða (já nú á sko að verða milli!) á þriðjudaginn og fór með hann í sjoppuna í gærmorgun og lét athuga hvort það væri ekki örugglega vinningur á honum... Maðurinn renndi miðanum í gegn og horfði svo lengi á miðann og svo á mig eins og ég væri fábjáni. Ég spurði hvort miðinn væri eitthvað skrýtinn en þá horfði hann enn frekar á mig eins og ég væri mjög heimsk. Þá fattaði ég allt í einu og spurði: "jáá, það er ekkert búið að draga - er það nokkuð?" "Nei...." var svarið sem ég fékk og hann rétti mér miðann hægt. Ein ógeðslega æst að fá lottóvinning klukkan 8 á miðvikudagsmorgni hehehe
Fór og lét klippa mig og daman er komin með þennan fína topp núna - ágætist tilbreyting, er alltaf eins um hausinn!
Læt þetta duga í bili, verð að hlaupa og ná mér í brjóstsviðatöflu áður en ég DEY hreinlega hérna!
Chiao
Bloggar | 8.5.2008 | 17:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
Fólk
Litlu krúttin
-
Tómas
sonur Þórlaugar systur -
Jóhann Benóný
sonur Ólöfar vinkonu -
Helgi Fannar og Pétur Snær
synir Filla og Sillu -
Daníel Orri
sonur Jónu Karenar vinkonu -
Andrea Ýr og Mikael Örn
börn Lindu frænku -
Alexandra Dís
dóttir Önnu Maríu vinkonu
Samkeppnisbloggarar
Af mbl.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.2.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 29080
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar



saran
h100
gudruni
doriborg
malacai
toothsmith
saxi
erla
eyvi
ragnarfreyr
totatud








